Kauplykill er sjóður sem fjárfestir í íbúðarhúsnæði og er í eigu Skugga byggingafélags, félags með áratuga reynslu af mannvirkjagerð og fasteignaþróun. Kauplykill býður allt að 25% stuðning til fyrstu kaupanda og 20% fyrir aðra kaupendur, við kaup fasteigna sem eru í eigu Skugga byggingafélags og auðveldar því kaupendum að fjármagna sín kaup með lægri lántöku.
Kauplykill er hýstur og rekinn af eignastýringarfélaginu Stefni sem er eitt stærsta eignastýringarfélag landsins og hluti af samstæðu Arion banka.
Sjóðurinn mun fjárfesta í hlutdeild í viðkomandi fasteignum sem verða í óskiptri sameign með einstaklingum.
Einstaklingar sem eiga að lágmarki 10% eigið fé og standast greiðslumat íslenskra banka fyrir allt að 65% láni.
Kauplykill leggur þá allt að 25% til og verður þar af leiðandi 25% meðeigandi eignarinnar.
Kaupandi sem er að eignast sína fyrstu íbúð eða hefur ekki átt íbúðarhúsnæði í fimm ár.
Árleg hámarksnýting séreignarsparnaðar er kr. 500.000,- fyrir hvern einstakling og nýtingin getur staðið yfir í að hámarki 10 ára samfellt tímabil.
Nánari skýringar á skilyrðunum má finna á rsk.is
Íbúðir úr verkefnum Skugga bygginafélags Áshamar 2-6 og Baughamar 1
sem eru í eigu Skugga byggingafélags samstæðunnar.
Ef eignin hækkar í verði vegna markaðsaðstæðna þá fær viðskiptavinur ábata af sínum 70-75% að frádregnum eftirstöðvum fasteignaláns, sé það til staðar.
Kauplykill fær jafnframt ábata af sínum 20-25% eignarhlut.
Ef eignin lækkar í verði vegna markaðsaðstæðna og er seld á þeim tímapunkti, skiptist tapið hlutfallslega eftir eignarhlutföllum.
Viðskiptavinur ber rýrnun á sínum 70-75% hlut og Kauplykils á sínum 20-25% hlut.
Kauplykill er að fullu í eigu Skugga byggingafélags.
Okkar byggingar eru byggðar af fagmennsku, með gæði og þarfir viðskiptavina hverju sinni að leiðarljósi. Í dag starfa hjá Skugga hópur sérfræðinga en á hverju ári vinna fjöldi undirverktaka hjá fyrirtækinu. Við veljum með okkur reynslumikið fólk og leggjum áherslu á að rækta samstarf við trausta fagaðila sem skila vönduðu verki.
Kauplykill er hýstur og rekinn af sjóðastýringarfélaginu Stefni hf, sem er hluti af samstæðu Arion banka.
Ávinningur Kauplykils er að skapa virkari og öflugri markað með nýbyggingar Skugga byggingafélags. Ávinningur Stefnis felst í að reka og hafa umsjón með nýjum sjóðum sem ávaxtast í samræmi við verðþróun á íbúðarmarkaði.
Kauplykill greiðir allt að 20-25% af fasteignagjöldum, háð eignarhlutdeild í fasteigninni. Viðskiptavinur greiðir fyrir daglegt viðhald og rekstur fasteignarinnar s.s rafmagn, hita, húsgjöld og tryggingar.
Viðskiptavinur sér um daglegt viðhald eignarinnar og kostnað tengdan því, þ.á.m. húsfélagsgjöld.
Kauplykill tekur hlutfallslegan þátt í kostnaði vegna framkvæmda sem húsfélag samþykkir, en ekki vegna breytinga sem kaupandi ákveður sjálfur (t.d. innréttingar eða málningar) eða skemmda umfram almenn slit.
Kaupanda er heimilt að selja eignina hvenær sem er á samningstímanum. Það er þó þannig að ef sala á sér stað innan 36 mánaða frá gerð samnings leggst á slitagjald sem nemur kr. 200.000. Það er til þess að standa skil á kostnaði sem verður til við skjalagerð og umsýslu.
Kaupandi getur átt eignina lengur en 10 ár en þarf að gera upp samning við Kauplykil með endurfjármögnun eignar að 10 árum liðnum.
Við sölu er samningurinn gerður upp á sama tíma. Seljandi fær sinn hagnað hlutfallslega þar sem 70-75% eignarhlutur hans hefur hækkað með markaðnum.
Fyrir einstaklinga sem skortir eigið fé þá verður að vera hæfilegur eignarhaldstími til að byggja upp eigið fé með eignarhaldinu. Af þeim sökum var er ekki talið heppilegt að hafa eignarhaldstíma of stuttan.
Auk þess endurfjármagna einstaklingar gjarnan íbúðarhúsnæði á bilinu 5-10 árum og því var þessi eignarhaldstími talinn heppilegur.
Við kaup eignarinnar kaupir viðskiptavinurinn 70-75% og Kauplykill kaupir 20-25% fasteignar beint af seljanda.
Viðskiptavinur fer í greiðslumat og tekur lán hjá bankastofnun/lífeyrissjóði eins og almennt gerist. Það lán fer á 1. veðrétt í allri íbúðinni (100% eignarhluta) en að sama skapi fær Kauplykill 2. veðrétt í íbúðinni (100% eignarhluta)
Já, kaupandi getur endurfjármagnað veðlán sín á samningstímanum. Til þess þarf alltaf samþykki Kauplykils en jafnframt er Kauplykli óheimilt að neita samþykkis án eðlilegrar og réttmætrar ástæðu.
Viðskiptavinurinn getur krafist þess að nýta kauprétt sinn hvenær sem er eftir afhendingu með því að tilkynna það skriflega til Kauplykils.
Tilkynning um nýtingu kaupréttar þarf þó að berast Kauplykils eigi síðar en tilgreind dagsetning er skv. samningi (valréttartímabil).
Ef greitt er inná samning miðað við markaðsvirði eignarhluts Kauplykils lækkar framtíðar leiga í hlutfalli við það.
Án skriflegs samþykkis Kauplykils er viðskiptavini óheimilt að gera breytingar á húsnæðinu sem ganga lengra en það viðhald sem viðskiptavini er skylt að inna af hendi.
Allar breytingar á eigninni sem ekki teljast til eðlilegs viðhalds er á kostnað kaupanda.
Kauplykill er óheimilt að synja um samþykki án réttmætrar ástæðu.
Já, kaupanda er heimilt að leigja út eignina og tekur leigugreiðslur að fullu til sín.
Kaupandi ber alla ábyrgð á eigninni gagnvart skemmdum og tjóni sem getur skapast við útleigu.
Aðilar gera með sér tvo samninga a) Sameignarsamning og b) Leigusamning.
Meginsamningurinn er sameignarsamningur og tekur á skyldum og réttindum beggja aðila þe. viðskiptavinar sem er 70-75% eigandi eignarinnar og Kauplykils sem er 20-25% eigandi.
Leigusamningurinn tekur á hverjar greiðslur viðskiptavinar eru fyrir afnot af eignarhlutnum.
Aparta Iceland ehf kt: 550125-0560 er þjónustuaðili Stefnis sem hýsir og rekur Kauplykil.
Hægt er að hafa samband við Aparta í gegnum heimsíðu þeirra www.aparta.is.